Fotbolti.net
25.07.23 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

Ósáttur við stöðuna sem hann spilaði hjá Liverpool - „Ég tala ekkert við Klopp“

Fabio Carvalho og Jürgen Klopp

Fabio Carvalho og Jürgen Klopp

Canon

Mynd: EPA

Fabio Carvalho mun reyna fyrir sér hjá RB Leipzig á þessu tímabili en hann er á láni frá Liverpool. Hann var ósáttur með ýmislegt hjá enska félaginu en útilokar ekki að snúa aftur.
Englendingurinn, sem á einnig ættir að rekja til Portúgals, reyndi að ýta því í gegn í sumar að komast frá Liverpool eftir að hafa fengið fá tækifæri með liðinu.

Hann samdi við Liverpool á síðasta ári eftir að hafa staðið sig vel með Fulham í ensku B-deildinni.

Liverpool samþykkti á dögunum að senda Carvalho á lán til Leipzig en þýska félagið er ekki með kauprétt í samningnum.

Carvalho ræddi við fjölmiðla frá öllum heimshornum á dögunum og var spurður hvort hann væri að taka við hlutverki Dominik Szoboszlai hjá Leipzig, en sá samdi einmitt við Liverpool fyrir ekki svo löngu síðan.

„Ég er ekki hrifinn af því að tala um aðra leikmenn. Það auðvitað vita það allir að Szoboszlai er mjög svo góður leikmaður, en ég hef trú á sjálfum mér og veit að ég get gefið allt mitt besta fyrir Leipzig,“ sagði Carvalho.

Leikmaðurinn segist ekki hafa verið að spila sína stöðu hjá Liverpool. Hann kann best við sig fyrir aftan framherja en spilaði mest megnis á kantinum.

„Ég held að þetta hafi ekki gengið upp hjá Liverpool út af stöðunni sem ég var að spila. Ég spilaði vinstra megin, sem er eiginlega ekki mín staða. Mér var sagt að ég myndi spila sem tía en við spiluðum ekki með tíu á síðasta tímabili. Þegar við spilum með tíu þá get ég sýnt mínar bestu hliðar. Það er held ég ástæðan fyrir að það gekk ekki upp og hvort ég verði hér eða hjá Liverpool á næsta ári þarf svo bara að koma í ljós.“

Carvalho ræddi ekkert við Jürgen Klopp, stjóra Liverpool, áður en hann hélt til Leipzig.

„Ef ég á að vera hreinskilinn þá tala ég ekkert við hann. Hann gaf mér engin ráð og ég varð bara að finna út úr þessu upp á eigin spýtur. Það er hvort er betra fyrir mig svo ég geti þroskast, bæði sem manneskja og fótboltamaður,“ sagði hann í lokin.
Ósáttur við stöðuna sem hann spilaði hjá Liverpool - „Ég tala ekkert við Klopp“
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.