Fotbolti.net
25.07.24 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Messi með bestu tölfræði síðustu tveggja ára í Evrópu

Messi með bestu tölfræði síðustu tveggja ára í Evrópu
Canon

Mynd: Getty Images

Argentínska goðsögnin Lionel Messi er enn með bestu sendingatölfræði síðustu tveggja ára í Evrópu þrátt fyrir að hafa ekki spilað þar síðan í fyrra.
Umrædd sendingatölfræði snýr að flestum heppnuðum sendingum innfyrir varnarlínur andstæðinganna í fimm bestu deildum Evrópu síðustu tvö tímabil.

Messi átti 37 heppnaðar stungusendingar með PSG í frönsku deildinni tímabilið 2022-23 og er efstur á listanum. Bruno Fernandes, leikmaður Manchester United, er í öðru sæti með 35 heppnaðar stungusendingar yfir síðustu tvö tímabil.

Martin Ödegaard, sem leikur fyrir Arsenal, er í þriðja sæti og þar á eftir koma Álex Baena hjá Villarreal og Kevin De Bruyne, leikmaður Manchester City.

Messi með bestu tölfræði síðustu tveggja ára í Evrópu
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.