25.07.26 - 11:46
Brynjar Ingi Erluson
HM-stjarnan gerir átján mánaða samning í Síle

Mynd: EPA

Mynd: EPA
HM-stjarnan Vozinha hefur fundið sér nýtt félag, en markvörðurinn hefur samþykkt að ganga í raðir Colo Colo í Síle. Hann gerir eins og hálfs árs samning.
Vozinha fór á kostum með Grænhöfðaeyjum í frumraun þeirra á heimsmeistaramótinu í sumar.
Þar hélt hann hreinu gegn Spánverjum og átti þá margar magnaðar vörslur er þjóðin komst alla leið í 32-liða úrslit.
Markvörðurinn fór úr nokkur þúsund fylgjendum á Instagram og í meira en tuttugu milljónir fylgjenda, sem gerir hann að vinsælasta markverði samfélagsmiðilsins.
Tilboðunum hefur rignt yfir Vozinha sem hefur nú tekið ákvörðun, en hann hefur samþykkt að gera átján mánaða samning við Colo Colo, sem er sigursælasta félag Síle.
Á dögunum var greint frá því að viðræðurnar væru við það að detta upp fyrir sig, en aðilarnir náðu saman á endanum og staðfesti forseti félagsins að Vozinha væri á leið til félagsins.
Hann er nú á leið til Síle til að fara í læknisskoðun áður en hann skrifar undir.

???????????? Vozinha to Colo Colo, here we go! Verbal agreement in place for Cape Verde goalkeeper.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) July 25, 2026
Documents yet to be signed, likely to happen over the weekend and then time to travel for medical tests.
Vozinha, ready for new chapter in Chile. ???????? pic.twitter.com/La6gjffDBL