Fotbolti.net
25.07.26 - 11:22
Brynjar Ingi Erluson
Í samstarfi við styrktaraðila

Neita því að hafa lagt fram risatilboð í Leao

Rafael Leao

Rafael Leao

Canon

Mynd: EPA

Tyrkneska félagið Fenerbahce vísar því á bug að hafa lagt fram 100 milljóna evra risatilboð í Rafael Leao, vængmann AC Milan, á Ítalíu.
Fenerbahce taldi sig knúið til að bregðast við fréttum undanfarinna daga um að félagið væri að ganga frá kaupum á Leao.

Leao er 27 ára og hefur lýst því opinberlega yfir að hann vilji yfirgefa AC Milan í sumar.

Tyrkneskir fjölmiðlar hafa sagt Fenerbahce vera eitt þeirra félaga sem sýna honum áhuga. Félagið vill hins vegar leiðrétta þær fréttir að það hafi lagt fram tilboðspakka upp á 100 milljónir evra að launum meðtöldum.

Fenerbahce hefur einnig vísað á bug fréttum um áhuga á Ermedin Demirovic, leikmanni Stuttgart í Þýskalandi.

„Við biðjum stuðningsmenn okkar vinsamlega um að leggja ekki trúnað á vangaveltur og fjölmiðlafréttir sem ætlað er að trufla einbeitingu okkar.“

„Þar er ranglega haldið fram að við höfum árangurslaust reynt að fá ákveðna leikmenn eða séum að horfa til leikmanna sem eru ekki á óskalista okkar. Félagið mun sjálft greina almenningi frá slíkum upplýsingum,“ segir í yfirlýsingu Fenerbahce.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.