Fotbolti.net
25.07.26 - 10:00
Ívan Guðjón Baldursson

Segir 100% líkur að fyrirliði Tottenham skipti um félag

Segir 100% líkur að fyrirliði Tottenham skipti um félag
Canon

Mynd: EPA

Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano segir 100% líkur á því að Cristian Romero yfirgefi Tottenham í sumar.
Romero hunsaði Trump - Yamal og Messi knúsuðust
TENGT EFNI

Romero hunsaði Trump - Yamal og Messi knúsuðust

Þessi öflugi miðvörður er fyrirliði Tottenham en er óhamingjusamur hjá félaginu. Hann vill skipta yfir til stærra félags sem er að berjast um titla.

Auk þess að vera lykilmaður hjá Tottenham er Romero einnig afar mikilvægur hlekkur í landsliði Argentínu. Hann er eftirsóttur af stórveldum um allan heim og eru Ítalíumeistarar Inter taldir leiða kapphlaupið sem stendur.

Inter er í viðræðum við Tottenham um kaupverð en enska úrvalsdeildarfélagið vill fá 50 milljónir evra fyrir miðvörðinn sinn, sem er sama upphæð og Spurs borgaði til að kaupa hann úr röðum Atalanta sumarið 2022.

Barcelona og Atlético Madrid eru einnig áhugasöm um Romero en hann er ekki talinn vera efstur á óskalista spænsku stórveldanna.
Segir 100% líkur að fyrirliði Tottenham skipti um félag
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.