25.07.26 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Senegal í viðræðum við Patrick Vieira

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Patrick Vieira er talinn vera efstur á óskalista senegalska fótboltasambandsins til að taka við landsliðsþjálfarastarfinu sem er laust eftir að Pape Thiaw var rekinn eftir HM.

TENGT EFNI
Landsliðsþjálfari Senegal látinn taka poka sinn (Staðfest)
Senegalska sambandið hefur sett sig í samband við Vieira en viðræður eru á byrjunarstigi.
Vieira er fimmtugur og hefur stýrt Genoa, Strasbourg, Crystal Palace, Nice og New York City FC á þjálfaraferlinum.
Vieira er fæddur í Senegal en fjölskylda hans flutti til Frakklands þegar hann var átta ára gamall. Hann átti eftir að verða goðsögn fyrir Arsenal og franska landsliðið þar sem hann var partur af liðinu sem vann HM 1998 og EM 2000, auk þess að vera fyrirliði goðsagnakennds liðs Arsenal sem vann ensku úrvalsdeildina tímabilið 2003-04 án þess að tapa leik.
Miðjumaðurinn öflugi Pape Gueye gæti snúið aftur í senegalska landsliðið ef Vieira tekur við.

Neitar að spila fyrir þjóð sína meðan hann þjálfar

Mynd: EPA