Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
   sun 25. ágúst 2024 16:39
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: dv 433 
Segja Jón Dag vera á leið til Hertha Berlin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
433 greinir frá því að Jón Dagur Þorsteinsson, leikmaður OH Leuven í Belgíu, sé á leið í þýska boltann.

Hann er á leið í læknisskoðun hjá Hertha Berlin, sem leikur í næstefstu deild í Þýskalandi.

Jón Dagur er 25 ára gamall kantmaður með 37 landsleiki að baki fyrir Ísland. Undanfarin ár hefur hann leikið fyrir AGF í Danmörku og Leuven í Belgíu við góðan orðstír og nú er kominn tími á næsta skref á ferlinum.

Hertha kaupir Jón Dag frá Leuven eftir að hafa unnið kapphlaup við ýmis önnur félög sem vildu einnig kaupa íslenska landsliðsmanninn.

Hertha er með fjögur stig eftir þrjár umferðir á nýju tímabili í Þýskalandi, eftir að hafa endað um miðja deild á síðustu leiktíð með 48 stig úr 34 leikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner