25.09.16 - 16:41
Jóhann Ingi Hafþórsson
Hemmi: Markið var brandari og við áttum að fá pjúra víti
Auglýsing

Hermann Hreiðarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Hermann Hreiðarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Hermann Hreiðarsson, þjálfari Fylkis, var að sjálfsögðu fúll eftir 2-2 jafntefli við botnlið Þróttar í dag. Fylkir er í ansi vondum málum í deildinni eftir leikinn og þurfa að vinna KR á útivelli til að eiga einhvern möguleika á að halda sér uppi.
Hann segir það svekkjandi að liðið spilaði ekki betur í seinni hálfleik en Fylkismenn voru 2-1 yfir í hálfleik.
Hann segir það svekkjandi að liðið spilaði ekki betur í seinni hálfleik en Fylkismenn voru 2-1 yfir í hálfleik.
„Þetta var eins svekkjandi og það getur orðið miðað við gang fyrri hálfleiksins. Þeir komust yfir í fyrsta skipti sem þeir fóru yfir miðju og það var hálf svekkjandi að fara bara með 2-1 í hálfleik.\"
Hermann var mjög ósáttur við tvö atriði sem áttu sér stað í seinni hálfleik.
„Þetta mark var brandari og við eigum að fá pjúra, pjúra víti, maðurinn var rifinn niður með báðum höndum.\"
Þrátt fyrir að staðan sé erfið, á Fylkir ennþá smá möguleika á að halda sæti sínu í deildinni.
„Ef þú ert með miða, þá ertu með möguleika,\" sagði Hermann.