Fotbolti.net
25.09.26 - 17:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

John Andrews spáir í 2. umferð Bestu kvenna eftir skiptingu

John Andrews, þjálfari KR.

John Andrews, þjálfari KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spámaður
Önnur umferð Bestu deildar kvenna eftir skiptingu hefst í kvöld með tveimur mjög áhugaverðum leikjum í neðri hlutanum. Valur og Víkingur eru á fallsvæðinu fyrir leiki kvöldsins en þessi lið mætast á Hlíðarenda.

John Andrews, þjálfari KR, spáir í leikina. Vesturbæjarstórveldið verður í Bestu deildinni á næsta ári eftir að hafa endað í öðru sæti Lengjudeildarinnar í sumar.
Neðri hluti
Þór/KA 2 - 1 Fram (18:00 í kvöld)
Hamlett skorar snemma og heldur áfram að eiga frábært tímabil. Þór/KA snýr svo leiknum við undir lok og sýnir hið klassíska Akureyrarhjarta. Arna Sif tryggir svo sigurinn með skalla.

Valur 1 - 1 Víkingur R. (18:00 í kvöld)
Valur kemst yfir með marki frá Ísabellu en sér svo eftir því að hafa ekki nýtt færin betur. Bergdís jafnar fyrir Víking og tryggir liðinu stig.

Efri hluti
ÍBV 2 - 3 Breiðablik (14:00 á morgun)
Ég sé þetta fyrir mér sem leik umferðarinnar - fullt af mörkum og góðum fótbolta. Agla María, Líf og Ása skora fyrir Blika en Clark gerir tvö fyrir ÍBV.

Grindavík/Njarðvík 1 - 4 FH (14:00 á sunnudag)
Grindavík/Njarðvík heldur áfram að gefa ungum leikmönnum tækifæri og byggja upp þetta spennandi verkefni, en krafturinn í FH verður of mikill að þessu sinni. Þar sem grasið er ekki Grindavík/Njarðvík í hag í þessum leik sé ég FH stjórna leiknum að mestu. Julia Ruth skorar fyrir heimakonur en Thelma, Deja og Andrea skora snemma fyrir FH áður en Elín Björg klárar dæmið með frábæru einstaklingsframtaki undir lokin.

Þróttur R. 0 -0 Stjarnan (14:00 á sunnudag)
Bæði lið gefa ungum leikmönnum mikið pláss og leyfa fleiri leikmönnum að fá mínútur. Liðin halda svo hvort öðru í skefjum og skilja jöcn. (Fylgist svo með þessu enda 5-5 eftir 20 mínútur, haha).

Fyrri spámenn:
Arnar Páll (5 réttir)
Helena Ólafs (4 réttir)
Aldís Kara (4 réttir)
Ásta Eir (4 réttir)
Fanndís Friðriks (3 réttir)
Mist Rúnars (3 réttir)
Katrín Ásbjörns (3 réttir)
Lovísa Scheving (2 réttir)
Valgerður Ósk (2 réttir)
Alma Mathiesen (2 réttir)
Arna Eiríks (2 réttir)
Magnús Haukur (2 réttir)
María Gros (1 réttur)
Sædís Rún (1 réttur)
Thelma Karen (1 réttur)
Jóhann Fjalar (1 réttur)
Anna Björk (0 réttir)
Valur og Víkingur mætast í kvöld.

Valur og Víkingur mætast í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Líf Joostdóttir van Bemmel, nýliðinn í landsliðinu.

Líf Joostdóttir van Bemmel, nýliðinn í landsliðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH mætir Grindavík/Njarðvík.

FH mætir Grindavík/Njarðvík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Uppbótartíminn - Geggjuð vegferð, biluð barátta og stórar landsliðsfréttir

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Fram19-1523
2Þór/KA19-322
3Víkingur R.19-1121
4Valur19-1020
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.