Salah, Rashford, Guehi, Ten Hag, Dewsbury-Hall og fleiri í pakka dagsins
   fös 25. október 2019 15:13
Magnús Már Einarsson
Hödda Magg sagt upp hjá Stöð 2 Sport
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Herði Magnússyni, íþróttafréttamanni á Stöð 2 Sport, hefur verið sagt upp störfum en frá þessu greinir hann á Facebook síðu sinni.

Hörður hefur verið starfsmaður Sýn og síðar Stöð 2 Sport í tæp tuttugu ár.

Hann hefur verið þáttastjórnandi Pepsi-markanna undanfarin níu ár og ekki misst úr einn einasta þátt á þeim tíma. Þá hafa lýsingar hann frá leikjum vakið verðskuldaða athygli í gegnum tíðina.

Yfirlýsing frá Herði á Facebook
Mitt líf hefur verið uppfullt oft á tíðum af óvæntum beygjum. Ein slík hrikti undir mínum stoðum í morgun. Á 3 mínútna fundi var mér fyrirvaralaust sagt upp störfum eftir tæplega 20 ár. Hef reynt að vinna af heilindum og samviskusemi alla tíð. Vænst þykir mér að hafa kynnst mörgu frábæru fólki í gegnum tíðina. Ég hef verið heill þrátt fyrir atvinnutilboð annars staðar frá. Pepsi Mörkin voru ekki bara vinna. Þau standa mér næst. Í 9 ár án þess að missa úr þátt þá er það mest sem ég er stoltur af. Lýsingar á vettvangi í Moskvu Wembley og Munchen eru eftirminnilegar sem og HM 2006. Ég kveð með söknuði. En það skyldi engan afskrifa mig. Góðar stundir.
Athugasemdir
banner