25.10.26 - 09:23
Brynjar Ingi Erluson
Alvarez baðst afsökunar - „Þetta voru mistök“

Julian Alvarez

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Julian Alvarez

Mynd: EPA
Argentínski framherjinn Julian Alvarez hefur beðist afsökunar á framkomu sinni í sumar og heitið því að leggja allt sitt af mörkum til að hjálpa Atlético að berjast um titla á tímabilinu.
Það gekk mikið á í kringum Alvarez í sumar eftir að hann lýsti því opinberlega yfir að hann vildi yfirgefa Atlético og ganga til liðs við Barcelona.
Stjórnarmenn Atlético voru allt annað en sáttir við framgöngu Barcelona, sem þeir töldu hafa nýtt sér fjölmiðla til að koma Alvarez úr jafnvægi og þrýsta á um félagaskiptin. Atlético setti því fótinn niður og neitaði alfarið að selja hann til Börsunga.
Félagið var þó tilbúið að selja Alvarez annað og var meðal annars áhugi á honum frá Englandi, en Argentínumaðurinn hafði engan áhuga á að snúa aftur þangað.
Á endanum varð Alvarez áfram hjá Atlético, en það hefur tekið stuðningsmenn liðsins tíma að fyrirgefa honum eftir allt sem gekk á í sumar. Nú hefur hann stigið fram og beðist afsökunar á framkomu sinni í von um að geta lagt málið að baki.
„Ég vil biðja stuðningsmenn okkar afsökunar á því sem ég sagði á meðan heimsmeistaramótið stóð yfir. Þetta voru mistök, bæði hvernig ég orðaði hlutina og hvenær ég lét þau falla.“
„Ég skil vel hvers vegna stuðningsmennirnir voru reiðir. Ég hefði sjálfur brugðist eins við ef ég væri í þeirra sporum.“
„Sérstaklega þegar ég hugsa til þess hversu vel þeir hafa stutt mig. Þeir hafa alltaf verið mér góðir og ég kann virkilega að meta það. Ég vil líka þakka þeim fyrir að hafa haldið áfram að styðja mig í gegnum þetta erfiða tímabil.“
Alvarez segir að honum sé smám saman farið að líða betur og að stuðningur liðsfélaganna hafi skipt hann miklu máli.“
„Mér hefur farið að líða betur með hverjum deginum. Ég er þakklátur öllum liðsfélögum mínum fyrir stuðninginn og hef lagt hart að mér við að bæta mig. Í síðustu leikjum hefur mér liðið betur, bæði líkamlega og þegar ég er með boltann. Ég vil hjálpa liðinu og leggja mig allan fram.“
„Þegar manni líður vel með sjálfan sig sést það líka inni á vellinum. Þótt við séum atvinnumenn hefur það sem gerist utan vallar áhrif á okkur. Nú líður mér hins vegar vel og ég er tilbúinn að berjast um allt sem er í boði.“
„Vonandi tekst mér að snúa þessari stöðu við með mikilli vinnu og auðmýkt,“ sagði Alvarez við Movistar.
Alvarez var hægur af stað eftir sumargluggann en hefur nú skorað í síðustu tveimur leikjum og tryggði þá 1-0 sigur á Deportivo La Coruna um helgina, en Atlético er á miklu skriði og hefur unnið sex deildarleiki í röð.