25.10.26 - 09:32
Brynjar Ingi Erluson
Sveindís komin í úrslitakeppnina í Bandaríkjunum

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir var í byrjunarliði Angel City þegar liðið vann 2-0 sigur á Bay FC í bandarísku NWSL-deildinni í nótt. Með sigrinum tryggði liðið sér sæti í úrslitakeppni deildarinnar.
Tímabilið hefur verið upp og niður hjá Angel City sem vann fyrstu þrjá deildarleiki sína, en lenti síðan á erfiðum kafla þar sem liðið vann aðeins fjóra af næstu þrettán leikjum.
Frá því í september hefur hins vegar allt annað verið uppi á teningnum. Angel City hefur heldur betur fundið taktinn á ný og unnið sjö af síðustu níu leikjum sínum og gert tvö jafntefli.
Sveindís lék nær allan leikinn í 2-0 sigrinum í nótt, sem var annar sigur liðsins í röð. Angel City er nú í fjórða sæti deildarinnar með 49 stig þegar aðeins ein umferð er eftir.
Liðið hefur þegar tryggt sér sæti í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar, en það kemur ekki í ljós fyrr en að lokinni lokaumferð hver mótherjinn verður.
Sveindís hefur sjálf átt gott tímabil og er komin með níu mörk og þrjár stoðsendingar í deildinni.

IN CASE YOU MISSED IT, YOUR 2026 ANGEL CITY FC SQUAD IS IN THE PLAYOFFS! ???? https://t.co/VuNZ3PvNyK
— Angel City FC (@weareangelcity) October 25, 2026