Fotbolti.net
25.10.26 - 09:56
Brynjar Ingi Erluson

Arteta ósáttur: Ég er kominn með risastórt safn af myndbrotum

Arteta ósáttur: Ég er kominn með risastórt safn af myndbrotum
Canon

Mynd: EPA

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, er allt annað en sáttur við dómgæsluna í ensku úrvalsdeildinni og telur að stjórar liðanna sitji ekki allir við sama borð. Hann lét gamminn geisa eftir að hafa fengið gult spjald fyrir að yfirgefa boðvanginn í 2-0 sigri á Everton í gær.
Arteta er þekktur fyrir að stíga út fyrir boðvanginn þar sem þjálfurum er ætlað að halda sig við hliðarlínuna, en hann segir að margir aðrir stjórar brjóti þessar reglur mun oftar en hann sjálfur.

Í gær fékk Arteta sitt annað gula spjald á tímabilinu fyrir að yfirgefa boðvanginn og var hann greinilega ósáttur við að ekki væri tekið jafn hart á öllum stjórum deildarinnar.

„Ég verð að fara varlega. Þeir ættu eiginlega að koma fyrir skynjurum þarna.“

„Það eru aðrir stjórar í deildinni sem eiga metið í þessu. Sumir hafa farið 36 sinnum út fyrir boðvanginn á aðeins tíu mínútum án þess að fá eitt einasta gult spjald.“

„Ég ætla að safna öllum þessum myndbrotum saman. Ég er þegar kominn með risastórt safn og ef einhver kemur til mín get ég sýnt honum að ég á ekki metið. Það er einhver annar sem á það, svo sjáum við bara hvað gerist.“

„Ef reglunum væri fylgt ættu þessir stjórar að hafa fengið 36 gul spjöld á tíu mínútum. Ég veit ekki hvað við gerum í þessu, en það kemur í ljós,“
sagði Arteta.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.