25.10.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Velur franska landsliðið fram yfir Portúgal og Fílabeinsströndina

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Eli junior Kroupi sóknarleikmaður Bournemouth er búinn að taka ákvörðun varðandi landsliðsferilinn sinn.

TENGT EFNI
Kroupi frá næstu mánuðina - Mörg stórlið á eftir honum
Tvítugur Kroupi hefur verið lykilmaður upp yngri landslið Frakka og ætlar að halda áfram að spila fyrir landið sem hann ólst upp í, þrátt fyrir tækifæri til að spila fyrir Fílabeinsströndina og Portúgal í gegnum foreldra sína. Faðir hans er frá Fílabeinsströndinni og er móðir hans portúgölsk.
Kroupi hefur skorað 19 mörk í 39 landsleikjum og er mikilvægur hlekkur í sterku liði Bournemouth. Hann setti 13 mörk í 33 leikjum á sínu fyrsta úrvalsdeildartímabili en hefur ekki verið með á upphafi nýs tímabils vegna meiðsla á fæti.
Hann meiddist á æfingu í júlí og þurfti aðgerð sem hélt honum frá keppni allt undirbúningstímabilið. Hann er þó búinn að jafna sig eftir þriggja mánaða fjarveru og er í leikmannahópi Bournemouth sem heimsækir Manchester United á Old Trafford í dag.