Fotbolti.net
25.10.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson

Vill koma Wednesday aftur í topp 10

Vill koma Wednesday aftur í topp 10
Canon

Mynd: EPA

David Bruce tók við sem framkvæmdastjóri Sheffield Wednesday í maí þegar hann leiddi hóp bandarískra fjárfesta sem keypti félagið.
Fjárfestunum tókst að koma í veg fyrir 15 stiga frádrátt og er liðið í sjöunda sæti League One deildarinnar, sem er sú þriðja efsta á Englandi, með 18 stig eftir 10 umferðir.

Bruce, sem var áður partur af stjórn Sunderland, hefur mikla trú á Wednesday sem fótboltafélagi og vill gera það að topp 10 félagi á Englandi á nýjan leik - líkt og stjórnendum Sunderland tókst þar á bæ.

Wednesday var sterkt úrvalsdeildarlið á árunum sem Bruce ólst upp og vann deildabikarinn 1991. Liðið endaði svo í öðru sæti í deildabikarnum og FA bikarnum tveimur árum síðar.

„Sheffield Wednesday var topp 10 félag á Englandi og getur orðið það aftur, þetta félag getur skotist upp eins og geimflaug. Eitt af því fyrsta sem Simon Wilson (nýr yfirmaður fótboltamála) sagði við mig í starfsviðtalinu var að þetta félag er sofandi risi, og hann hefur rétt fyrir sér," segir Bruce.

„Við þurfum að gera hlutina rétt til þess að ná árangri og við áttum okkur á því að þetta er frábært tækifæri. Ég get ekki hugsað um betra tækifæri annars staðar í Evrópu.

„Þetta verður ekki auðvelt, það munu koma erfiðir kaflar, en vegferðin verður mjög skemmtileg. Við erum með háleit markmið."
Vill koma Wednesday aftur í topp 10
Canon

Mynd: Sheffield Wednesday

England 1. deild - karlar

#LiðLmunStig
1Huddersfield12+1325
2Stockport12+1223
3Bradford12+522
4Plymouth13+222
5Reading12+1221
6Cambridge United12+320
7Oxford United10+819
8Sheff Wed11+818
9Mansfield Town11+418
10Luton11+217
11Burton13-117
12Stevenage11+415
13Leicester11015
14Wycombe12-415
15Leyton Orient12+214
16Wimbledon12-1113
17Doncaster Rovers11-112
18MK Dons11-612
19Notts County11-311
20Blackpool11-411
21Peterboro12-1010
22Bromley11-169
23Barnsley11-108
24Wigan11-97
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.