Næst síðasta umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar lauk í kvöld. Meistaradeildin er til umræðu í hljóðvarpsþættinum Innkastinu í vetur, alltaf þegar leikvika er í keppninni.
Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz eru fastir í Meistaradeildarumræðunni en í þættinum í kvöld var Runólfur Trausti Þórhallsson, stuðningsmaður Manchester United, með þeim.
Innkastið er hljóðvarpsþáttur Fótbolta.net. Þar er kafað aðeins dýpra í hlutina og rætt um fótbolta á mannamáli.
Hægt er að hlusta á umræðuna í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Sjá einnig:
HLUSTAÐU á fyrri Innköst
Athugasemdir