25.11.18 - 16:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Boca sendir frá sér yfirlýsingu - Vilja frestun

Carlos Tevez er stjarnan í liði Boca Juniors.

Mynd: Getty Images

Carlos Tevez er stjarnan í liði Boca Juniors.

Mynd: Getty Images
Boca Juniors hefur sent frá sér opinbera yfirlýsingu þar sem þess er krafist að seinni leikur liðsins við River Plate í úrslitum Meistaradeildar Suður-Ameríkur verði frestað enn frekar.
Leikurinn átti að fara fram í gær en var frestað eftir að stuðningsmenn River Plate réðust á liðsrútu Boca Juniors. Var táragasi meðal annars kastað inn í rútuna.
Leikmenn Boca voru ekki í góðu ásigkomulagi eftir árásina og var leiknum því frestað.
Hann á að fara fram í kvöld en Boca hefur farið fram á það að leiknum verði frestað enn frekar. Þetta er seinni leikur liðanna en fyrri leikurinn á heimavelli Boca endaði með 2-2 jafntefli.
Þetta er í fyrsta skipti þar sem River Plate og Boca mætast í úrslitunum í þessari keppni en liðin eru gríðarlegir erkifjendur.
Boca vill ekki að leikurinn verði spilaður fyrr en öryggi leikmanna verði tryggt.

Comunicado de prensa | El Club Atlético Boca Juniors realizó este domingo una presentación formal ante la Conmebol para solicitar que la final de la Copa Libertadores se juegue en condiciones de igualdad, tal como se firmó ayer en el Estadio Monumental. 👉 https://t.co/Ym4UTeFlxy pic.twitter.com/s2KGK86zPi
— Boca Jrs. Oficial 🏆🏆 (@BocaJrsOficial) November 25, 2018