Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 25. nóvember 2020 19:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía: Andri ónotaður varamaður í bikartapi Bologna
Andri Fannar Baldursson.
Andri Fannar Baldursson.
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn efnilegi Andri Fannar Baldursson var ónotaður varamaður þegar Bologna tapaði fyrir Spezia í bikarkeppninni á Ítalíu.

Hinn 18 ára gamli Andri Fannar hefur ekki spilað mikið í upphafi tímabils. Hann er búinn að koma við sögu í tveimur keppnisleikjum á leiktíðinni, en á síðustu spilaði hann í sjö deildarleikjum í ítölsku úrvalsdeildinni.

Hann sat allan tímann á bekknum í kvöld þegar Bologna tapaði 2-4 fyrir Spezia í framlengdum leik.

Sveinn Aron Guðjohsen er samningsbundinn Spezia en hann er þessa stundina á láni hjá OB í Danmörku. Bæði Andri og Sveinn eru hluti af U21 landsliðinu sem tekur þátt í lokakeppni Evrópumótsins á næsta ári.

Parma, Cagliari og Fiorentina fóru einnig áfram í bikarnum í kvöld. Cosenza, Hellas Verona og Udinese féllu úr leik ásamt Bologna.
Athugasemdir
banner
banner