Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 26. janúar 2020 11:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Leikmaður Matlock Town lést í kjölfar líkamsárásar
Sinnott kom upp í gegnum akademíu Huddersfield Town og spilaði tvo leiki fyrir aðallið félagsins í Championship-deildinni.
Sinnott kom upp í gegnum akademíu Huddersfield Town og spilaði tvo leiki fyrir aðallið félagsins í Championship-deildinni.
Mynd: Getty Images
Jordan Sinnott, leikmaður Matlock Town í sjöundu efstu deild Englands, er látinn aðeins 25 ára að aldri. Hann lést í kjölfar líkamsárásar sem hann varð fyrir í bænum Retford á föstudagskvöld.

Sinnott, sem var eitt sinn á mála hjá Huddersfield Town, höfuðkúpubrotnaði. Hann lést í faðmi fjölskyldu sinnar á spítala í gærkvöldi.

Maður er í haldi lögreglu vegna málsins, maðurinn er 27 ára gamall. Lögreglan í Nottinghamshire fer með rannsókn málsins.

Lögregla var send á Dominie Cross barinn í Retford um klukkan 23:25 á föstudagskvöld vegna tilkynningu um slagsmál á bílastæði þar. Átta manns voru viðloðandi þau slagsmál. Breskir fjölmiðlar segja svo frá því að um klukkan tvö hafi sjúkraflutningarmenn komið að meðvitundarlausum Sinnott.

Lögreglan leitar að vitnum sem geta gefið upplýsingar um málið.

Sinnott var í láni hjá Matlock frá Alfreton. Bæði félög fengu leikjum sínum frestað um þessa helgi.

„Þú varst ekki bara fótboltamaður, þú varst vinur okkar og bróðir. Þú gafst okkur ótrúlegar minningar og skoraðir þína fyrstu þrennu á ferlinum í síðasta leiknum," sagði í færslu Matlock Town á Twitter. „Hvíl í friði Jordan. Við elskum, söknum og munum aldrei gleyma þér."


Athugasemdir
banner
banner
banner