„Þetta er ótrúlegt. Við höfum spilað við þrjú úvalsdeildarlið í vetur og aðeins eitt þeirra hefur unnið okkur - Manchester City," sagði Karl Robinson, stjóri Oxford United, eftir 0-0 jafntefli gegn Newcastle á St. James' Park.
„Ég verð að gefa leikmönnum mikið hrós fyrir þessa frammistöðu. Leikmennirnir stóðu sig frábærlega og gott fyrir stuðningsmenn að upplifa svona leik í bikarkeppninni."
„Ég verð að gefa leikmönnum mikið hrós fyrir þessa frammistöðu. Leikmennirnir stóðu sig frábærlega og gott fyrir stuðningsmenn að upplifa svona leik í bikarkeppninni."
„Við fengum besta færi leiksins og ég er mjög ánægður með leikinn í heild. Við reyndum að spila eftir erfiða byrjun."
„Ég sagði mínum mönnum að slaka á og eftir að þeir gerðu það þá voru þeir í betri málum," sagði Robinson. Jafntefli þýðir að liðin mætast á ný, þá á heimavelli Oxford.
Athugasemdir