Fotbolti.net
26.01.24 - 12:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Jörg Schmadtke hættir líka hjá Liverpool (Staðfest)

Jörg Schmadtke.

Jörg Schmadtke.

Canon

Mynd: Getty Images

Jurgen Klopp tilkynnti það í morgun að hann myndi hætta sem stjóri Liverpool eftir tímabilið en nú hefur það einnig verið gefið út að Jörg Schmadtke sé að hætta sem yfirmaður fótboltamála hjá félaginu.
Klopp hættir með Liverpool eftir tímabilið (Staðfest)
TENGT EFNI

Klopp hættir með Liverpool eftir tímabilið (Staðfest)

Schmadtke, sem kom til Liverpool síðasta sumar, mun hætta eftir janúargluggann. Hann er náinn Klopp sem er að hætta hjá félaginu.

Schmadtke hjálpaði til við að móta lið Liverpool síðasta sumar og það er hægt að segja að það hafi gengið vel hjá honum.

„Við viljum þakka Jorg fyrir það mikilvæga hlutverk sem hann hefur leikið frá því hann kom til Liverpool síðasta sumar," segir Mike Gordon fyrir hönd eigendahóps Liverpool.

Schmadtke var áður íþróttastjóri Wolfsburg í yfir fjögur ár en lét af störfum í febrúar á síðasta ári. Hann er 59 ára og hefur gegnt svipuðum störfum fyrir Hannover og Köln.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.