Fotbolti.net
26.01.24 - 11:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Klopp útskýrir ákvörðunina - „Ég er að verða orkulaus"

Jurgen Klopp.

Jurgen Klopp.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jurgen Klopp hefur tekið ákvörðun um að hætta með Liverpool eftir tímabilið. Hann tilkynnti félaginu um fyrirætlanir sínar í nóvember síðastliðnum.
Klopp hættir með Liverpool eftir tímabilið (Staðfest)
TENGT EFNI

Klopp hættir með Liverpool eftir tímabilið (Staðfest)

Klopp tók við stjóri Liverpool í október 2015 en samnijngur hans átti að renna út 2026. Hann gerði Liverpool að Englandsmeistara 2019-20 eftir 30 ára bið félagsins. Tímabilið á undan vann Liverpool sjálfa Meistaradeildina.

Klopp mun kveðja Liverpool sem goðsögn en þetta eru afar óvænt tíðindi.

„Ég get skilið að á þessu augnabliki er þetta sjokk fyrir marga. Ég get augljóslega útskýrt þetta, eða reynt að gera það," segir Klopp.

„Ég gjörsamlega elska allt við þetta félag og allt við borgina. En ég tek ákvörðunina þrátt fyrir það og það sýnir ykkur að ég er sannfærður um að hún sé sú rétta."

„Ég er að verða orkulaus. Ég er góður núna en ég finn það að ég get ekki sinnt þessu starfi aftur og aftur, og aftur og aftur. Eftir öll árin sem við höfum varið saman og eftir allt sem við höfum gengið í gegnum saman, þá óx virðingin og ástin. Ég skulda ykkur sannleikann og þetta er sannleikurinn."

Klopp segir að það hafi verið mikilvægt fyrir sig að koma liðinu aftur á rétta braut eftir erfitt síðasta tímabil. Hann telur sig hafa gert það og núna sé kominn tími fyrir annan aðila að taka við starfinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.