Segir það einfalt verkefni að finna nýjan stjóra fyrir Liverpool

Xabi Alonso.

Mynd: EPA

Xabi Alonso.

Mynd: EPA
Ryan Babel, fyrrum leikmaður Liverpool, segir að það sé einfalt verkefni fyrir sitt gamla félag að finna arftaka Jurgen Klopp.

TENGT EFNI
Þessir eru líklegastir til að taka við Liverpool
Klopp tilkynnti það í morgun að hann myndi hætta með liðið eftir tímabilið.
Klopp tók við stjóri Liverpool í október 2015 en samnijngur hans átti að renna út 2026. Hann gerði Liverpool að Englandsmeistara 2019-20 eftir 30 ára bið félagsins. Tímabilið á undan vann Liverpool sjálfa Meistaradeildina.
„Liverpool hefur innan við sex mánuði til að finna einhvern sem þarf að skilja og laga sig að leikstíl og menningu Liverpool sem fyrst. Og sá aðili þarf líka að fylgja í fótspor Jurgen Klopp. Það er ekki auðvelt verkefni," skrifar Babel og bætir svo við:
„En bíðið við, það er reyndar mjög auðvelt verkefni. Xabi Alonso er þarna."
Alonso er að gera frábæra hluti með Bayer Leverkusen í Þýskalandi. Hann er með liðið fyrir ofan Bayern München á toppi deildarinnar. Alonso spilaði með Liverpool frá 2004 til 2009 við góðan orðstír.

Wait you guys are right… it’s actually easy….. Simply : Xabi Alonso ???? #LFC #JurgenKlopp
— Ryan Babel (@Ryanbabel) January 26, 2024