Þessir eru líklegastir til að taka við Liverpool

Xabi Alonso.

Mynd: EPA

Steven Gerrard.

Mynd: EPA

Xabi Alonso.

Mynd: EPA
Jurgen Klopp tilkynnti það fyrir stuttu að hann ætli sér að hætta með Liverpool eftir yfirstandandi tímabil.

TENGT EFNI
Klopp útskýrir ákvörðunina - „Ég er að verða orkulaus"
Fyrir nokkrum árum síðan var það talið svo gott sem bókað að Steven Gerrard, fyrrum fyrirliði Liverpool til margra ára, myndi taka við starfinu af Klopp en þar sem þjálfaraferill hans er svo gott sem í vaskinu, þá er sú tilhugsun nánast hlægileg í dag. Hann stýrir í dag Al-Ettifaq í Sádi-Arabíu en liðið hefur ekki unnið fótboltaleik síðan í október.
Í staðinn er fyrrum liðsfélagi Gerrard, Xabi Alonso, talinn líklegastur sem arftaki Klopp.
Betfair hefur sett saman stuðla og er þar lægsti stuðullinn á Alonso sem er að gera frábæra hluti með Bayer Leverkusen í Þýskalandi. Hann er með liðið fyrir ofan Bayern München á toppi deildarinnar. Alonso spilaði með Liverpool frá 2004 til 2009 við góðan orðstír.
Næst líklegastur til að taka við starfinu er Pep Lijnders, aðstoðarmaður Klopp, og þar á eftir kemur Roberto De Zerbi, stjóri Brighton. Svo er Gerrard næstur á listanum en það kemur kannski á óvart hversu ofarlega hann er.
Líklegastir til að taka við af Klopp:
1. Xabi Alonso
2. Pep Lijnders
3. Roberto De Zerbi
4. Steven Gerrard
5. Julian Nagelsmann
6. Ange Postecoglou
7. Diego Simeone
8. Antonio Conte
9. Luis Enrique
10. Graham Potter