Fotbolti.net
26.01.24 - 11:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Stuðningsmenn Man Utd fagna - „Eitt stærsta hrósið sem hægt er að gefa Klopp"

Jurgen Klopp.

Jurgen Klopp.

Canon

Mynd: EPA

Á meðan stuðningsmenn Liverpool eru svekktir, þá fagna stuðningsmenn Manchester United þeim tíðindum að Jurgen Klopp sé að hætta með Liverpool.
Klopp hættir með Liverpool eftir tímabilið (Staðfest)
TENGT EFNI

Klopp hættir með Liverpool eftir tímabilið (Staðfest)

Klopp tók við stjóri Liverpool í október 2015 en samningur hans átti að renna út 2026.

Hann gerði Liverpool að Englandsmeistara 2019-20 eftir 30 ára bið félagsins og tímabilið á undan vann Liverpool sjálfa Meistaradeildina.

Samuel Luckhurst, sem skrifar fyrir Man Utd fyrir Manchester Evening News, segir að stuðningsmenn séu hæstánægðir að losna við Klopp frá erkifjendunum.

„Eitt stærsta hrósið sem hægt er að gefa Klopp er að United vildi óska sér að þeir væru með hann sem stjóra sinn. Var uppáhald stuðningsmanna United til að leysa Moyes af hólmi árið 2014. Þeir eru ánægðir að hann fari. Á skilið að vera í flokki með Paisley og Shankly," segir Luckhurst.

„Núna er tækifærið fyrir Man Utd. Klopp er að fara og Guardiola gæti farið sumarið 2025. United þarf að drífa sig að koma hlutunum í lag hjá sér."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.