Fotbolti.net
26.02.19 - 10:27
Magnús Már Einarsson

Tíu leikmenn ekki með Manchester United á morgun?

Juan Mata fór meiddur af velli gegn Liverpool.

Juan Mata fór meiddur af velli gegn Liverpool.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United verður án allt að tíu leikmanna þegar liðið mætir Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld. Jesse Lingard, Ander Herrera og Juan Mata fóru allir meiddir af velli í fyrri hálfleik gegn Liverpool um helgina.
Auk þeirra eru Nemanja Matic, Marcus Rashford, Anthony Martial, Matteo Darmian, Antonio Valencia, Phil Jones og Mason Greenwood allir að glíma við meiðsli. Marcos Rojo er hins vegar klár á nýjan leik eftir meiðsli.

Lingard var nýkominn aftur eftir meiðsli þegar hann meiddist aftur eftir stutta innkomu í leiknum gegn Liverpoool.

„Kannski var Jesse of æstur en hann var búinn að klára allt á æfingum. Hann hafði klárað endurhæfinguna en kannski var þetta nokkrum dögum of snemmt. Þetta var leikur gegn Liverpool og hann vildi ólmur spila," sagði Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, á fréttamannafundi í dag.

Marcus Rashford spilaði allan leikinn gegn Liverpool þar sem skiptingarnar kláruðust í fyrri hálfleik. Hann gekk þó augljóslega ekki heill til skógar.

„Við erum að bíða eftir hvernig ökklin hans verður eftir meðhöndlun. Það er of snemmt að hugsa um það," sagði Solskjær í dag.

„Það er svolítið langt í Valencia. Hann fór aftur í kálfanum og það eru nokkrar vikur í hann."

„(Anthony) Martial verður heldur ekki klár í þennan leik. Hann nær kannski leiknum gegn Southampton (á laugardag) en við tökum ekki áhættu með fleiri."
Jesse Lingard meiddist eftir baráttu við Alisson.

Jesse Lingard meiddist eftir baráttu við Alisson.

Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.