fös 26. febrúar 2021 18:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Andri Fannar frá í allt að þrjár vikur
Mynd: Getty Images
Andri Fannar Baldursson, leikmaður Bologna, verður ekki með liðinu í næstu leikjum í Serie A.

Þessu segir félagið frá í dag og kemur fram að Andri sé tognaður. Hann verður frá í tvær til þrjár vikur og missir af næstu þremur deildarleikjum.

Hann gæti komið til baka gegn Sampdoria þann 14. mars eða gegn Crotone þann 20. mars.

Andri varð fyrir ári síðan yngsti íslenski leikmaðurinn til að spila í topp fimm deildum Evrópu.

Þetta er svekkjandi fyrir Andra en hann hafði lítið komið við sögu að undanförnu þar til í síðasta leik þegar hann kom inn á Sassuolo. Hann varð nítján ára í janúar og lék í fyrra sinn fyrsta A-landsleik.
Athugasemdir
banner
banner
banner