Torino 0 - 2 Napoli
0-1 Tiemoue Bakayoko ('11 )
0-2 Victor Osimhen ('13 )
Rautt spjald: Rolando Mandragora, Torino ('86)
0-1 Tiemoue Bakayoko ('11 )
0-2 Victor Osimhen ('13 )
Rautt spjald: Rolando Mandragora, Torino ('86)
Napoli vann afar mikilvægan sigur á Torino er liðin áttust við á Ólympíuleikvanginum í Tórínó í kvöld en leiknum lauk með 2-0 sigri Napoli.
Franski miðjumaðurinn Tiemoue Bakayoko kom Napoli yfir með góðu skoti fyrir utan teig. Hann labbaði framhjá leikmanni Torino áður en hann lét vaða. Nokkuð þægilegt hjá Frakkanum.
Victor Osimhen tvöfaldaði forystuna tveimur mínútum síðar eftir slæm mistök Nicolas N'Koulou. Osimhen vann boltann af honum, keyrði fram völlinn og skoraði örugglega.
Undir lok leiksins var Rolando Mandragora rekinn af velli er hann fékk sitt annað gula spjald fyrir peysutog.
Öruggur sigur Napoli staðreynd og liðið komið upp í þriðja sæti deildarinnar með 66 stig þegar fimm leikir eru eftir en liðið er með jafnmörg stig og Juventus og Milan sem eru þó með slakari markatölu.
Athugasemdir