Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 26. apríl 2021 20:40
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Darmstadt á siglingu
Guðlaugur Victor er fastamaður í liði Darmstadt
Guðlaugur Victor er fastamaður í liði Darmstadt
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þýska B-deildarliðið Darmstadt hefur verið að gera fína hluti í síðustu leikjum liðsins en það vann Bochum 3-1 í kvöld eftir að hafa lent undir í leiknum.

Íslenski landsliðsmaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson var á sínum stað í byrjunarliði Darmstadt og spilaði hann allan leikinn fyrir liðið í kvöld.

Darmstadt lenti undir á 74. mínútu leiksins en mætti því mótlæti af krafti og skoraði þrjú mörk á sjö mínútna kafla.

Serdar Dursun skoraði tvö og Christian Clemens eitt mark og lokatölur því 3-1.

Darmstadt hefur unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum liðsins og er í 10. sæti deildarinnar með 42 stig.
Athugasemdir
banner
banner