Alfreð Már Hjaltalín líka kominn heim í Ólafsvík (Staðfest)

Marki fagnað gegn KR.

Mynd: Eyjólfur Garðarsson

Marki fagnað gegn KR.

Mynd: Eyjólfur Garðarsson
Ólsarar halda áfram að tilkynna endurkomur til félagsins. Í gær var sagt frá því að Þorsteinn Már Ragnarsson hefði tekið skóna af hillunni og rétt í þessu var tilkynnt að Alfreð Már Hjaltalín hefði samþykkt að ganga í raðir félagsins.
„Líkt og með Þorstein mun Alfreð ekki geta helgað sig boltanum að fullu í sumar en ljóst að reynsla hans og gæði munu nýtast liðinu í sumar," segir í tilkynningu Ólsara.
„Líkt og með Þorstein mun Alfreð ekki geta helgað sig boltanum að fullu í sumar en ljóst að reynsla hans og gæði munu nýtast liðinu í sumar," segir í tilkynningu Ólsara.
„Alfreð er fæddur árið og 1994 og lék sína fyrstu meistaraflokksleiki fyrir Víking Ó. árið 2010. Alls hefur hann leikið 236 meistaraflokksleiki í deild og bikar og skorað 27 mörk. Þar á meðal má nefna að hann hefur spilað 63 af 66 leikjum Víkings Ó. í efstu deild. Alfreð hefur lítið spilað undanfarin ár vegna meiðsla en hefur æft vel í vetur og mun hjálpa liðinu í sumar."
Eftir tímabilið 2017 með Víkingi gekk hann í raðir ÍBV. Næsta stopp var hjá Leikni og tímabilin 2021 og 2022 var hann skráður í Kormák/Hvöt. Eins og segir í tilkynningunni hefur Alfreð lítið spilað undanfarin ár.
Víkingur verður í 2. deild í sumar líkt og í fyrra.