Fotbolti.net
26.04.23 - 11:11
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Björgvin Stefáns í Hauka (Staðfest)

Björgvin varð Íslandsmeistari með KR tímabilið 2019.

Björgvin varð Íslandsmeistari með KR tímabilið 2019.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Björgvin Stefánsson hefur fengið félagaskipti í Hauka, skiptir yfir til uppeldisfélagsins frá KR þar sem hann lék tímabilin 2018-19 en hann hefur ekki spilað KSÍ leik síðan í mars 2020.

Björgvin er 28 ára sóknarmaður sem sagði í viðtali við Fótbolta.net í febrúar að hann ætlaði sér að snúa aftur á völlinn.
„Ég gaf þannig séð aldrei út að ég væri hættur. Ég hélt alltaf í vonina. Ég þurfti að hætta að æfa og gat í rauninni ekkert hreyft mig; gat ekki skokkað, hjólað eða neitt. Þetta var í hægra hnénu á mér. Ég var í gigtarmeðferð sem var eiginlega ekkert að virka. Svo fékk ég loksins að fara á líftæknilyf í september og það skilaði strax árangri."

„Það er númer eitt, tvö og þrjú hjá mér núna að koma mér í hlaupaform. Ég er annars í góðu líkamlega standi. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á líkamsrækt og hef haldið mér við þannig. Ég gat ekki hlaupið í rosalega langan tíma og ég finn það að grunnþolið er ekki alveg upp á það besta. Ég ætla mér að vinna í því,"
sagði Björgvin m.a. í viðtalinu.

Björgvin lék með Haukum tímabilin 2011-2013, 2015 og 2017. Alls hefur hann skorað 40 deildarmörk fyrir Hauka, öll í 1. deild. Haukar eru nú á leið í sitt fjórða tímabil í 2. deild.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.