Spænska félagið Real Betis er stórhuga fyrir sumarið en það vill fá fimm leikmenn frá Barcelona. Þetta kemur fram í spænska miðlinum Sport.
Félögin hafa átt í góðu sambandi síðustu árin en það má taka sem dæmi kaupin á Emerson. Barcelona og Betis keyptu leikmanninn saman síðasta sumar en ákveðið var að hann yrði hjá Betis fyrstu tvö árin en Barcelona gæti svo keypt hann fyrir 6 milljónir evra árið 2021.
Samkvæmt Sport vill Betis fá fimm leikmenn frá Barcelona í sumar en það eru þeir Ansu Fati, Carles Alena, sem er nú þegar á láni hjá Betis, Riqui Puig, Junior Firpo og Francisco Trincao.
Firpo var keyptur til Barcelona frá Betis síðasta sumar en honum hefur ekki tekist að finna sig hjá stórliðinu.
Trincao gengur til liðs við Barcelona í sumar frá Benfica en verður að öllum líkindum lánaður út til að fá leikreynslu í spænsku deildinni.
Athugasemdir