Leikmenn Borussia Dortmund vildu fá vítaspyrnu á 58. mínútu er skot Erling Braut Haaland fór af Jerome Boateng og aftur fyrir endamörk.
                
                
                                    Heimamenn áttu öfluga sókn sem endaði með því að Haaland fékk boltann í teignum. Jerome Boateng rann fyrir framan Haaland en norski framherjinn lét vaða og fór boltinn af Boateng og framhjá.
Þegar atvikið er skoðað í endursýningunni sést að boltinn fer af olnboganum á Boateng en þýski landsliðsmaðurinn réttir út olnbogann og kom í veg fyrir upplagt marktækifæri.
Dómarinn sá ekkert athugavert við atvikið og skoðaði VAR það ekkert frekar.
Hægt er að sjá atvikið hér fyrir neðan
Handball by Boateng or not? 🧐pic.twitter.com/LFJXRYDY34
— 𝙂𝙡𝙚𝙣™ ⚡ (@GlenSzn) May 26, 2020
Athugasemdir
                                                                
                                                        
 
        

 
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                        
                        
        
         
                    
        
         
                 
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                            
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                
                        
        
        

