Spænski vinstri bakvörðurinn Marc Cucurella er opinn fyrir því að ganga til liðs við Manchester City í sumar en þetta sagði hann á Twitch í gær.
Cucurella er 23 ára gamall og kom til Brighton á síðasta ári en hann var valinn besti leikmaður ársins á fyrsta tímabili sínu á Englandi.
Spánverjinn hefur verið orðaður við Englandsmeistara Manchester City síðustu vikur og kveðst leikmaðurinn opinn fyrir því að fara þangað.
Cucurella myndi smellpassa inn í lið Guardiola en hann getur spilað bæði sem bakvörður og á vængnum.
„Maður verður að nýta sér tækifærið ef það gefst. Sumum liðum er ekki hægt að hafna," sagði Cucurella á Twitch er hann var spurður út í áhuga Man City.
Athugasemdir