Senegalski sóknarmaðurinn Sadio Mané gæti verið á förum frá Liverpool í sumar en hann ræddi við Sky Sports um framtíðina í gær.
Mané, sem er 30 ára gamall, var keyptur til Liverpool frá Southampton fyrir sex árum og hefur síðan þá skorað 120 mörk í 268 leikjum.
Hann hefur unnið allt sem hægt er að vinna hjá félaginu og gæti nú verið í leit að nýrri áskorun ef marka má svör hans í viðtali við Sky Sports er hann var spurður út í framtíðina.
„Þetta er mjög góð spurning og það er erfitt að svara henni núna. Spurðu mig að þessari spurningu eftir úrslitaleikinn í Meistaradeildinni og ég mun gefa þér svar," sagði Mané við Sky en úrslitaleikurinn er gegn Real Madrid á laugardag.
Bayern München og Paris Saint-Germain hafa mikinn áhuga á því að fá hann í sumar en hann á aðeins eitt ár eftir af samningi hjá Liverpool.
🗣 “I’m going to answer after the Champions League.”
— Football Daily (@footballdaily) May 25, 2022
Sadio Mané responds to being asked about his future at Liverpool. 👀 pic.twitter.com/YWx3WA4pfq
Athugasemdir