Fotbolti.net
26.06.13 - 19:19
Ívan Guðjón Baldursson

Caldirola til Werder Bremen (Staðfest)

Caldirola til Werder Bremen (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Fyrirliði ítalska U21 árs landsliðsins, Luca Caldirola, er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Werder Bremen í Þýskalandi.

Þetta er staðfest á vefsíðu Werder en ekki er gefið upp hversu mikið leikmaðurinn kostaði. Verðið er talið hafa verið í kringum tvær milljónir evra.
,,Það er stórt tækifæri fyrir mig að fara til Werder Bremen,\" sagði Caldirola við vefsíðu félagsins.

,,Þegar umboðsmaðurinn sagði mér frá áhuga Werder sagðist ég vilja fara þangað strax. Þetta er frábært félag.\"

Caldirola var fyrirliði landsliðs Ítalíu sem tapaði fyrir Spánverjum í úrslitaleik EM U21 fyrr í sumar. Hann er annar U21 landsliðsmaður Ítala sem fer til Þýskalands í sumar, þar sem Giulio Donati fór til Bayer Leverkusen í síðustu viku á um þrjár milljónir evra.

Heimild: Football-Italia

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.