26.06.13 - 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Jed Steer til Aston Villa (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Jed Steer er kominn til Aston Villa frítt eftir að samningur hans við Norwich City rann út.
Steer er tvítugur markvörður og kemur til félagsins þegar samningur hans rennur út, 1. júlí.

Paul Lambert, knattspyrnustjóri Villa, hefur þegar fengið Antonio Luna, Jores Okore, Leandro Bacuna, Aleksandar Tonev og Nicklas Helenius til liðsins í sumar.
,,Maður vill hafa samkeppni fyrir hverja stöðu í liðinu, sem vantaði alveg á síðasta tímabili,\" sagði Lambert við vefsíðu Aston Villa.
,,Að koma með Jed inn í liðið bætir markvarðarstöðuna og hjálpar til við að skapa samkeppni innan liðsins.\"
Steer á fjórtán landsleiki að baki fyrir unglingalandslið Englands og er einn af fjórum markvörðum Villa, en hinir eru Brad Guzan, Shay Given og Benji Siegrist.

Heimild: BBC