Fotbolti.net
26.06.13 - 13:49
Elvar Geir Magnússon

Zidane aðstoðarþjálfari Real Madrid (Staðfest)

Zidane aðstoðarþjálfari Real Madrid (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Real Madrid hefur staðfest að Zinedine Zidane og Paul Clement verði aðstoðarþjálfarar Carlo Ancelotti hjá Real Madrid á næstu tímabili.
Ancelotti sat fyrir svörum sem þjálfari Real Madrid í dag og þar kom þetta fram. Frakkinn Zidane er talinn í hópi bestu leikmanna sögunnar.

„Hann var frábær leikmaður og hefur ákveðið að taka að sér þessa stöðu. Hann hefur reynslu og ég hlakka til að vinna með honum. Hann verður góður aðstoðarmaður,\" sagði Ancelotti.

Englendingurinn Paul Clement var í þjálfaraliði Chelsea og fylgir Ancelotti frá Paris Saint-Germain þar sem þeir störfuðu saman.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.