Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
Kenneth Hogg: Finnst í ár við vera miklu heilsteyptara lið
Haraldur Freyr: Þurfum bara að gjörusvovel að fara gyrða okkur í brók
Gunnar Heiðar: Litli bróðir er ekki svo lítill lengur
Samkomulag gert áður en íslenski hópurinn kom saman
„Draumaaðstaða fyrir fótboltasamband að hafa"
Margt búið að gerast á átta árum - „Alls ekki sjálfsagt að vera í landsliðinu"
Sá á Instagram að hún væri í hópnum - Með mynd upp á vegg heillengi
Fékk ríkisborgararétt 2019 og fer nú með Íslandi á EM - „Ótrúleg tilfinning"
2. deildin komið Rúnari á óvart - „Gaman að kynnast landinu“
Hörður Snævar: Helvíti fúlt að menn nenntu ekki að leggja sig fram
Andri Þór þreyttur eftir framlengingu: Ekki það sem við þurftum fyrir langt ferðalag til Akureyrar
Sjáðu draumamark Sigurðar Péturs á Grenivík - „Klárlega besta markið á ferlinum"
Konni: Menn þreyttir eftir síðasta leik
Jón Óli bjóst við að vera í efstu þremur sætunum
Sigurður Egill: Mjög ánægður og stoltur með það
Túfa um Patrick Pedersen: Hann þarf að hlusta meira á mig
Sigurjón Rúnarsson: Aldrei víti segir nýútskrifaði fasteignasalinn
Óskar Hrafn skýtur á Túfa: Gerðu enga tilraun að spila fótbolta
Dóri Árna: 11 manna blokk og sparkað í menn frá fyrstu mínútu
Láki: Þetta var mjög skrítinn leikur
   fim 26. júní 2025 22:34
Stefán Marteinn Ólafsson
Kenneth Hogg: Finnst í ár við vera miklu heilsteyptara lið
Lengjudeildin
Kenneth Hogg fyrirliði Njarðvíkur
Kenneth Hogg fyrirliði Njarðvíkur
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Njarðvík tók á móti nágrönnum sínum úr Keflavík á JBÓ vellinum í kvöld þegar tíunda umferð Lengjudeildarinnar hóf göngu sína.


Lestu um leikinn: Njarðvík 3 -  1 Keflavík

„Mér fannst við eiga sigurinn skilið" sagði Kenneth Hogg fyrirliði Njarðvíkinga eftir leikinn í kvöld.

„Mér fannst í fyrri hálfleik við spila miklu betur en þeir og þeir vissu ekki hvernig þeir ættu að díla við okkur. Við vorum að spila okkur úr pressunni þeirra í hvert skipti"

„Í seinni hálfleik þá fáum við á okkur lélegt mark en við komum strax til baka og mér fannst við eiga skilið að vinna" 

Stuttu fyrir fyrsta mark leiksins sluppu Keflavík einir í gegn og Kári Sigfússon féll í teignum í baráttu við Kenneth Hogg og vildu Keflvíkingar fá víti og rautt á Njarðvíkinga. 

„Nei, ég snerti hann en það var alltof aumt til að fá rautt spjald og klárlega ekki víti. Ég var bara gamall maður að elta ungan gæja og hann verður að gefa mér smá séns"  sagði Kenneth Hogg brosandi.

„Að mínu mati hefði það verið 'soft' ef það hefði átt að gefa rautt og víti á þetta"

Njarðvíkingar komust á topp deildarinnar um í bili hið minnsta eftir þennan sigur en hversu langt getur þetta lið farið?

„Við höfum mikla trú á þessum hóp og okkur finnst við geta gert góða hluti. Okkar markmið í upphafi móts var að fara upp og okkur langar að afreka það. Við trúum því að við getum það eftir góða byrjun á tímabilinu rétt eins og á síðata tímabili áttum við góða byrjun"

„Okkur langar auðvitað ekki í þessa niðursveiflu sem við áttum þá svo við verðum að halda áfram og halda trú á hvor öðrum og mér finnst í ár við vera miklu heilsteyptara lið á meðan í fyrra vorum við með góða einstaklinga. Þú gast séð í dag sem dæmi að við vorum allir að berjast fyrir hvort annan og ég held við getum barist allt til enda í ár"

Nánar er rætt við Kenneth Hogg í spilaranum hér fyrir ofan. 


Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Njarðvík 10 5 5 0 24 - 10 +14 20
2.    ÍR 9 5 4 0 12 - 4 +8 19
3.    HK 9 5 2 2 17 - 9 +8 17
4.    Þór 9 4 2 3 20 - 17 +3 14
5.    Þróttur R. 9 4 2 3 16 - 15 +1 14
6.    Völsungur 9 4 1 4 15 - 19 -4 13
7.    Keflavík 9 3 3 3 16 - 12 +4 12
8.    Grindavík 8 3 2 3 22 - 19 +3 11
9.    Leiknir R. 9 2 2 5 10 - 22 -12 8
10.    Fylkir 9 1 4 4 10 - 14 -4 7
11.    Fjölnir 9 1 3 5 11 - 19 -8 6
12.    Selfoss 9 2 0 7 6 - 19 -13 6
Athugasemdir
banner