Rakel Karítas Árnadóttir sem fædd er árið 2004 spilaði í kvöld sinn fyrsta leik með SR í sumar.
Hún kom inn á sem varamaður á 55. mínútu leiksins.
Guðrún Þóra Elfar var þá í byrjunarliði SR en svo merkilega vill til að Guðrún er móðir Rakelar.
Hún kom inn á sem varamaður á 55. mínútu leiksins.
Guðrún Þóra Elfar var þá í byrjunarliði SR en svo merkilega vill til að Guðrún er móðir Rakelar.
Mæðgurnar spiluðu saman síðustu 35 mínúturnar af leiknum og birti Rakel skemmtilega mynd af þeim eftir leik á Instagram reikningi sínum.
Heimavöllurinn vakti athygli á þessu í kjölfarið.
Guðrún Þóra er fædd árið 1983 og er fyrrum leikmaður Hattar, Þróttar, KR, Fram og Gróttu.
Hún er í dag yngri flokka þjálfari hjá Þrótti.
Myndina af mæðgunum má sjá hér við fréttina.
Athugasemdir