Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 26. júlí 2022 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Coman styður við bakið á Jóni Daða og félögum
Kingsley Coman.
Kingsley Coman.
Mynd: Getty Images
Kingsley Coman, leikmaður Bayern München, var nýverið í viðtali við ESPN þar sem hann var spurður út í sitt uppáhalds félag á Englandi.

Coman heldur ekki með félagi sem er í ensku úrvalsdeildinni; þú þarft að leita niður í C-deild til að finna félagið sem hann heldur með.

„Bolton, ég kunni vel við þeirra lið þegar ég var ungur," sagði Coman.

Þegar hann var að alast upp þá lék Bolton í úrvalsdeildinni og var með leikmenn á borð við Jay-Jay Okocha og Fernando Hierro á sínum snærum.

Íslenski landsliðsmaðurinn Jón Daði Böðvarsson leikur í dag með Bolton sem er eins og fyrr segir í C-deild.
Athugasemdir
banner
banner
banner