Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 26. júlí 2022 15:00
Elvar Geir Magnússon
Flýgur Schmeichel í Hreiðrið í Nice?
Mynd: EPA
Franskir fjölmiðlar segja að markvörðurinn Kasper Schmeichel hafi samþykkt að ganga í raðir Nice.

Hann muni ganga í raðir franska félagsins ef Leicester nær að finna markvörð til að fylla hans skarð.

Schmeichel er 35 ára og er með samning á King Power til 2023 en L’Equipe segir hann hafa gert munnlegt samkomulag við Nice.

Hann hefur spilað fyrir Leicester síðan 2011 og hefur síðan spilað 477 leiki fyrir félagið.

Nice hafnaði í fimmta sæti í efstu deild Frakklands á síðasta tímabili en heimavöllur liðsins er Hreiðrið fræga þar sem Ísland vann England á EM 2016.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner