Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 26. júlí 2022 12:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimild: ÍBV 
ÍBV fær bandarískan sóknarmann (Staðfest)
Mynd: ÍBV
ÍBV hefur fengið liðsstyrk fyrir seinni hlutann í Bestu deild kvenna. Hin bandaríska Madison Wolfbauer mun leika með liðinu út tímabilið.

Hún er 22 ára gamall sóknarmaður sem lék í næst efstu deild Frakklands fyrr á þessu ári.

Madison lék með liði Bowling Green háskólans um nokkurra ára skeið og var valin sóknarmaður ársins í Mið-Ameríkudeildinni í fyrra.

Sydney Carr var fengin til ÍBV í vetur til þess að skora mörk en hún varð fyrir því óláni að meiðast strax í fyrsta leik.

ÍBV er í 4. sæti Bestu deildarinnar, með sautján stig eftir tíu leiki. Næsti leikur liðsins er gegn Selfossi eftir rúma viku.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner