26.07.23 - 10:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
FCK næstum því búið að setja inn á leikmann sem var ekki á skýrslunni

Úr leiknum í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úr leiknum í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FC Kaupmannahöfn vann 0-2 sigur gegn Breiðabliki í forkeppni Meistaradeildarinnar á Kópavogsvelli í gærkvöldi.
Lestu um leikinn: Breiðablik 0 - 2 FCK
Jordan Larsson kom FCK snemma yfir og svo bætti fyrirliðinn Rasmus Falk við marki fyrir leikhlé.
Það vakti athygli fréttamanna Fótbolta.net undir lok leiks að gestirnir frá Danmörku ætluðu að skipta Oscar Höjlund, yngri bróðir Rasmus, inn á völlinn.
Höjlund var hins vegar ekki skráður á skýrslu á vefsíðu UEFA frá leiknum.
Höjlund kom þó ekki inn á. FCK ætlaði að skipta honum inn á í uppbótartímanum en það varð ekkert af skiptingunni þar sem boltinn fór ekkert úr leik eftir að hann gerði sig klárann.
Það hefði verið athyglisvert að sjá hvort að það hefði haft einhverjar afleiðingar ef Höjlund hefði komið inn á í leiknum.