Gáfu 17 ára leikmanni 1 í einkunn fyrir frammistöðuna gegn Blikum

Roony Bardghji.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Roony Bardghji.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sænska undrabarnið Roony Bardghji átti ekki góðan leik á Kópavogsvelli gegn Breiðabliki í forkeppni Meistaradeildarinnar í gærkvöldi.
Bardghji er aðeins 17 ára gamall en hann byrjaði leikinn fyrir FCK og spilaði rétt tæplega klukkutíma.
Tipsbladet í Danmörku gaf leikmönnum FCK einkunnir eftir leikinn í gær og þar var Bardghji metinn slakasti leikmaður liðsins. Hann fékk aðeins einn af sex mögulegum í einkunn.
„Með kaupum á Elias Achouri er búist við öðru tímabili þar sem Roony Bardghji mun spila lítið. Það vantar enn þroska í leik hans," segir í umsögn Tipsbladet um leikmanninn.
Bardghji varð yngsti leikmaður í sögunni til að spila leik fyrir FC Kaupmannahöfn, stærsta félag Danmerkur, árið 2021. Bardghji er unglingalandsliðsmaður frá Svíþjóð og það eru miklar vonir bundnar við hann fyrir framtíðina.
„Maður sá þetta strax þegar hann mætti á fyrstu æfinguna með U17, hann byrjaði að labba fram hjá mönnum og smyrja boltanum upp í vinkilinn. Maður sá að þetta var enginn eðlilegur gæi," sagði Orri Steinn Óskarsson, liðsfélagi Bardghji, í viðtali við Ungstirnin stuttu eftir að Svíinn lék sinn fyrsta leik fyrir FCK.
FCK vann leikinn 0-2 í gær og fer með gott forskot til Kaupmannahafnar. Rasmus Falk og Jordan Larsson voru bestu leikmenn FCK í leiknum en þeir fengu báðir 5 hjá Tipsbladet. Ísak Bergmann Jóhannesson, sem kom inn á sem varamaður í seinni hálfleik, fékk aðeins 2 í einkunn en innkoma hans þótti ekki sérstök.