Mbappe harðneitar að fara í viðræður

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Kylian Mbappe, leikmaður Paris Saint-Germain í Frakklandi, ætlar ekki í viðræður við Al-Hilal í Sádi Arabíu, en þetta kemur fram í L'Equipe í kvöld.
PSG samþykkti á dögunum 300 milljóna evra tilboð Al-Hilal í Mbappe en það myndi gera hann að dýrasta leikmanni allra tíma.
Al-Hilal er tilbúið að gera allt til að fá Mbappe en hann myndi þéna 700 milljónir evra fyrir eitt ár hjá félaginu og býðst honum svo að fara til Real Madrid á frjálsri sölu.
Þetta yrði stærsti samningur í sögu allra íþrótta en til samanburðar myndi Mbappe þéna meira á einu ári en bandaríski körfuboltakappinn LeBron James hefur þénað allan ferilinn í NBA-deildinni.
L'Equipe segir þó að peningarnir skipti Mbappe litlu máli enda á hann nú þegar nóg af þeim. Hann ætlar ekki að ræða við Al-Hilal og er tilbúinn að hanga á bekknum eða utan hóps hjá PSG á komandi tímabili.
PSG er sannfært um að Mbappe hafi þegar samþykkt að ganga í raðir Real Madrid á frjálsri sölu á næsta ári.