Fotbolti.net
26.08.23 - 16:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Adam ekki valinn í hóp og bað um að æfa með 2. flokki

Adam ekki valinn í hóp og bað um að æfa með 2. flokki
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Adam Ægir Pálsson er ekki í leikmannahópi Vals gegn FH, var ekki valinn í 18 manna leikmannahópinn sem undirbýr sig undir leikinn gegn FH.

Í viðtali við Stöð 2 Sport fyrir leik sagði Arnar Grétarsson að Adam hefði einfaldlega ekki verið valinn í hópinn. Leikurinn hefst klukkan 17:00.
Lestu um leikinn: FH 3 - 2 Valur
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net óskaði Adam eftir því að fá að æfa með 2. flokki í dag og fékk að gera það.

Frá síðasta leik kemur Birkir Heimisson inn í leikmannahópinn eftir leikbann, fer beint í byrjunarliðið og keðjuverkunin sú að Adam missir sæti sitt í hópnum.

Adam var í stóru hlutverki framan af tímabili en það hefur verið minna að undanförnu. Adam er 25 ára vængmaður sem keyptur var frá Víkingi í vetur. Hann hefur skorað átta mörk og lagt upp fimm mörk í Bestu deildinni í sextán byrjunarliðsleikjum og fjórum innkomum af bekknum. Hann hafði fyrir leikinn í dag komið við sögu í öllum 20 leikjum Vals.

Sjá einnig:
Byrjunarlið FH og Vals: Daði og Sveinn Sigurður verja mörkin - Adam Páls ekki í hóp
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.