Midtjylland 1 - 0 Randers
1-0 Bozhidar Kraev ('6)
1-0 Bozhidar Kraev ('6)
Mikael Anderson spilaði allan leikinn er Midtjylland lagði Randers að velli í jöfnum leik í efstu deild danska boltans.
Bozhidar Kraev gerði eina mark leiksins á sjöttu mínútu og merkilegt að meira hafi ekki verið skorað því ekki vantaði uppá tilraunirnar.
Liðin mættust í þriðju umferð danska tímabilsins og er þetta annar sigur Midtjylland í röð. Midtjylland er með sex stig og Randers fjögur.
Mið-Jótlendingar hafa titil að verja eftir að hafa unnið dönsku deildina á síðustu leiktíð.
Athugasemdir