Fotbolti.net
26.09.23 - 08:00
Hafliði Breiðfjörð

Myndir: Allt sauð uppúr eftir handaband Óskars og Arnars í gærkvöldi

Arnar gengur ósáttur á eftir Óskari eftir leik.

Arnar gengur ósáttur á eftir Óskari eftir leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það sauð allt uppúr eftir leik 3 - 1 sigur Breiðabliks á Víkingi í gær en eftir handaband milli þjálfaranna við lokaflautið sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari Breiðabliks eitthvað við Arnar Gunnlaugsson þjálfara Víkings sem  brást reiður við en neðst í þessari frétt er smá syrpa af þessu.

Lestu um leikinn: Breiðablik 3 - 1 Víkingur R.

Arnar vildi ekki ræða við Fótbolta.net eftir leikinn en Óskar Hrafn kom í viðtal og var spurður út í hvað gekk þarna á?

„Ég sagði bara skoðun mína á ummælum hans fyrir leik og hann var ósáttur við það og ekkert mál. Menn hafa verið reiðari við mig heldur en þetta," sagði Óskar Hrafn spurður út í uppákomuna.

Ummælin sem Óskar Hrafn lét fara í taugarnar á sér sagði Arnar í beinni útsendingu við Stöð 2 Sport skömmu fyrir leikinn.

„Ég verð að viðurkenna það að mér finnst rosalega erfitt að átta mig á þessu Blikaliði í dag. Þeir eiga góðar frammistöður inn á milli en hafa tapað óheyrilega mikið af leikjum í sumar. Þeir hafa tapað tólf leikjum í deild, bikar og Evrópu sem er held ég meira en Víkingur hefur tapað á þremur árum," sagði Arnar fyrir leikinn.

„Vanalega þegar þú tapar svona mörgum leikjum á einu tímabili þá ertu ekki með rosalega mikið sjálfstraust en einhverra hluta vegna er verið að spinna söguna þannig að liðið lítur út fyrir að vera með bullandi sjálfstraust. Það er hættulegt fyrir mig ef þeir trúa því. Þeir eru með hörkulið og við þurfum að brjóta þá á bak aftur eins og við höfum gert í sumar."

Óskar Hrafn var líka spurður út í ummæli Arnars sérstaklega og sagði þá.

„Partur af mér langar ekki til að taka þátt í þessum sandkassaleik sem hann er að búa til. Þessum barnalega samanburði. Mér finnst rosalega mikið snúast um það hjá Víkingum og Arnari að telja titla og láta vita hvað þeir eru búnir að vinna marga leiki og titla. Þeir þurfa ekkert að gera það, þetta er flott lið. Það er oft þannig að það er sérstakt hvað menn tala mikið um að þeir séu eitt af bestu liðum sögunnar og hvað þeir eru búnir að vinna marga titla. Það vita það allir og þarf ekki að segja það. Þeim sem finnst þeir þurfa að segja hlutina svona oft, það er kannski eitthvað annað sem er að hrjá þá. Þetta er bara eins og þetta er," sagði Óskar og hélt áfram.

„Hann er bara sár, ég talaði um það fyrir leikinn í Víkinni að þeir væru bara búnir að vinna eitt einvígi í Evrópu og ég er ekki viss um að þeir hafi unnið á útivelli í Evrópu. Þeir hafa alltaf talið sig mikið Evrópulið og sterkir í Evrópu. Ég geri ráð fyrir að hann hafi verið að svara því, það er bara í lagi og bara flott. Góður banter myndi einhver segja en auðvitað hefur myndast rígur á milli þessara liða. Ég veit ekki hvort hann er heilbrigður eða hvort hann er kominn einhvern veginn út fyrir það sem eðlilegt getur talist. Þú heyri söngvanna úr stúkunni Víkings megin. Það er ekki mitt að dæma um það en vissulega er lítil ást á milli þessara liða og það er mín tilfinning að hún muni fara hverfandi á næstu vikum, mánuðum og árum og verði síðan engin."

Óskar fagnar sigurmarkinu í gær.

Óskar fagnar sigurmarkinu í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar á hliðarlínunni.

Arnar á hliðarlínunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þetta byrjaði allt á einu saklausu handabandi eftir lokaflautið.

Þetta byrjaði allt á einu saklausu handabandi eftir lokaflautið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Hrafn kallaði þá eitthvað á eftir Arnari.

Óskar Hrafn kallaði þá eitthvað á eftir Arnari.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar brást reiður við...

Arnar brást reiður við...

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

...og gekk á eftir honum.

...og gekk á eftir honum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þeir fóru hvor sína leið og Arnar faðmaði Damir Muminovic leikmann Blika.

Þeir fóru hvor sína leið og Arnar faðmaði Damir Muminovic leikmann Blika.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á meðan Óskar Hrafn faðmaði Karl Friðleif Gunnarsson leikmann Víkings.

Á meðan Óskar Hrafn faðmaði Karl Friðleif Gunnarsson leikmann Víkings.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eftir að þeir þökkuðu dómurunum fyrir leik var ljóst að Arnar átti eftir að ræða málin frekar.

Eftir að þeir þökkuðu dómurunum fyrir leik var ljóst að Arnar átti eftir að ræða málin frekar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hann sagði eitthvað við Óskar og hélt sína leið.

Hann sagði eitthvað við Óskar og hélt sína leið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar vildi þá segja sína skoðun.

Óskar vildi þá segja sína skoðun.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það andaði köldu.

Það andaði köldu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

En menn fóru í sundur.

En menn fóru í sundur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar leit undan og hafði greinilega mjög gaman af þessu.

Óskar leit undan og hafði greinilega mjög gaman af þessu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eftir þetta mættust þeir ekki á Kópavogsvelli í kvöld.

Eftir þetta mættust þeir ekki á Kópavogsvelli í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ljóst er að menn skildu ekki sáttir.

Ljóst er að menn skildu ekki sáttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

En gengu að lokum hvor sína leið.

En gengu að lokum hvor sína leið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.