Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 26. október 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Belotti ætlar ekki að endursemja
Andrea Belotti.
Andrea Belotti.
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Andrea Belotti ætlar sér að yfirgefa herbúðir Torino næsta sumar.

Hann verður samningslaus í júní 2022. Hann hefur látið félagið vita að hann mun ekki framlengja samning sinn.

„Belotti mun ekki endursemja. Hann mun ekki fara í janúar, hann mun ákveða framtíð sína í júní," sagði Ivan Juric, þjálfari Torino, um málið.

Belotti er 27 ára gamall og hefur verið einn af sterkari framherjum ítalska boltans síðustu árin. Hann hefur alls skorað 93 mörk í 213 deildarleikjum fyrir Torino.

Hann verður án efa eftirsóttur og verður fróðlegt að sjá hvert næsta skref hans verður.
Athugasemdir
banner
banner